Vinnuþrælkun á prjónastofu í vík

Karlmaður af erlendum uppruna er í haldi lögreglunnar á Suðurlandi grunaður um vinnuþrælkun. Hann var handtekinn í Vík eftir umfangsmiklar aðgerðir lögreglunnar á Suðurlandi nú í vikunni.
 
Fyr­ir ligg­ur grun­ur um að maður­inn, sem er frá Sri Lanka hafi haldið tveim­ur kon­um með er­lent rík­is­fang í vinnuþrælk­un í kjallara á prjónastofu sinni í Vík, en þar er hann m.a. undirverktaki Víkurprjóns sem selur prjónavörur í verslunum sínum víða um land. Lögreglan mun hafa áður gert athugasemdir við aðbúnað starfsfólks á vinnustað mannsins. Forráðamenn Víkurprjóns hafa nú rift samningi við manninn, en þeir segja vitneskjuna um meint mansal hafa komið algerlega í opna skjöldu.
 
Það var visir.is sem greindi fyrst frá málinu í gærkvöld, en fram hefur komið að sunnlenska lögreglan naut aðstoðar frá lögreglunni á Suðurnesjum, af höfuðborgarsvæðinu, sérsveit ríkislögreglustjóra og ríkisskattstjóra við rannsókn hins meinta mansals. 
 

Þorgrímur Óli Guðmundsson, yfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á Suðurlandi staðfesti´þessa málavöxtu við RÚV í morgun, en þar kemur fram að maðurinn hefur ekki verið yfirheyrður og Þorgrímur Óli vildi ekki gefa upp hvort farið yrði fram á gæsluvarðhald yfir manninum.

Hann vildi að öðru leyti lítið tjá sig um málið, sagði lögregluna hafa farið í aðgerðir í gærdag og að tvær erlendar konur hefðu verið frelsaðar. Þorgrímur Óli vildi hvorki gefa upp hvers konar atvinnustarfsemi maðurinn hefði stundað, né hvernig lögreglan hefði komist á snoðir um málið.  

Lögreglan hefur sent frá sér stutta yfirlýsingu á Facebook-síðu sinni:

Maður handtekinn vegna gruns um vinnumansal.

Lögreglan á Suðurlandi handtók í gærdag erlendan karlmann í Vík í Mýrdal vegna gruns um vinnumansal. Fyrir liggur grunur um að maðurinn hafi haldið tveimur konum með erlent ríkisfang í vinnuþrælkun. Lögreglan á Suðurnesjum, mansalsteymi lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu, sérsveit ríkislögreglustjóra veittu aðstoð við aðgerðina auk starfsmanna ríkisskattstjóra. Rannsókn er í fullum gangi og á viðkvæmu stigi og lögreglan mun ekki veita frekari upplýsingar að svo stöddu.

Karlmaður af erlendu bergi brotinn er í haldi lögreglunnar á Suðurlandi grunaður um vinnuþrælkun. Hann var handtekinn í Vík eftir umfangsmiklar aðgerðir lögreglunnar á Suðurlandi sem naut aðstoðar frá lögreglunni á Suðurnesjum, af höfuðborgarsvæðinu, sérsveit ríkislögreglustjóra og ríkisskattstjóra
 

Visir.is greindi fyrst frá málinu í gærkvöld.

Þetta staðfestir Þorgrímur Óli Guðmundsson, yfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á Suðurlandi. Maðurinn hefur ekki verið yfirheyrður og Þorgrímur Óli vildi ekki gefa upp hvort farið yrði fram á gæsluvarðhald yfir manninum.

Hann vildi að öðru leyti lítið tjá sig um málið, sagði lögregluna hafa farið í aðgerðir í gærdag og að tvær erlendar konur hefðu verið frelsaðar. Þorgrímur Óli vildi hvorki gefa upp hvers konar atvinnustarfsemi maðurinn hefði stundað, né hvernig lögreglan hefði komist á snoðir um málið.  

Lögreglan hefur sent frá sér stutta yfirlýsingu á Facebook-síðu sinni.