Maður festi fót í ullartætara

Alvarlegt vinnuslys varð í Ullarþvottarstöðinni á Blönduósi í gær. Ungur maður festi fót í ullartætara sem rífur niður ull. Samstarsmönnum mannsins tókst að losa fótinn en hann er illa útleikinn eftir slysið.

Þetta kemur fram á huni.is.

Ekki bætti úr skák að bæði Holtavörðuheiði og Öxnadalaheiði voru lokaðar á þessum tíma. Var ungi maðurinn fluttur til Reykjavíkur með sjúkraflugi en fram kemur að þyrla Landhelgisgæslunnar var ekki tiltæk þegar óskað var eftir henni.

Ekki er vitað um líðan unga mannsins.