Maður fannst látinn í vaðlaheiðargöngum

62 ára íslenskur karl­maður fannst lát­inn í Vaðlaheiðargöng­um í gær. Hvorki er talið að and­látið hafi borið að með sak­næm­um hætti né að um vinnuslys hafi verið að ræða. Mbl.is greinir frá.

Berg­ur Jóns­son, aðstoðar­yf­ir­lög­regluþjónn hjá rann­sókn­ar­deild lög­regl­unnar á Norður­landi eystra, staðfesti þetta í samtali við Mbl.is og bætti við að maðurinn hafi látist skyndilega og að ekkert benti til þess að hann hefði orðið fyrir eitrun eða einhverju slíku sem tengdist vinnunni.

Þó er ekki hægt að segja til um dánarorsök mannsins með fullri vissu fyrr en að lokinni krufningu.

Maðurinn starfaði sem málari og var við störf í svokölluðu tæknirými í göngunum þegar hann féll frá. Þegar viðbragðsaðilar komu á staðinn reyndu þeir endurlífgun en við komuna á sjúkrahús var hann úrskurðaður látinn.