Undantekningin sem sannaði regluna um skynsama þjóð sem hélt sig heima við í fárviðrinu í gærkvöld og nótt var maður sem fannst kaldur og hrakinn uppi á Rjúpnahæð í Kópavogi í nótt.
Manninum var komið til bjargar og undir læknishendur að því er fram kemur á fésbókarsíður lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, en að öðru leyti þurfti ekki að sinna ósjálfbjarga fólki á suðvestanverðu landinu á meðan illviðrið lamdi á landinu.
Lögreglan og aðrir björgunaraðilar höfðu annars í nógu að snúast í óveðrinu sem gekk yfir landið í gærkvöld og nótt, en yfir tvö hundruð björgunarsveitarmenn voru að störfum á höfuðborgarsvæðinu. Um klukkan tvö í nótt höfðu borist um 200 útköll, en þá hafði veðrið að mestu gengið niður og búið var að fækka í útkallsliðinu í umdæminu. Á meðal þess sem tilkynnt var um voru hurðir og gluggar sem fuku upp, sem og klæðningar og þakkantar sem losnuðu.
Viðbúið er að eitthvað sé um fok- og vatnstjón og þá skemmdust enn fremur í veðurofsanum bátar í Reykjavíkurhöfn, eins og fram kemur í færslu lögreglunnar: \"Ekki var annað að sjá en fólk virti fyrirmæli og héldi sig heima og er það vel,\" stendur þar skrifað, en minnt um leið á þessu einu undantekningu sem að ofan greinir.