Rússneskur strætóbílstjóri að nafni Gleb Terekhin, vildi árið 1995 fá hjálp frá Kvennalistanum að ná sér í bæði eiginkonu og vinnu á Íslandi. Í sunnudagsblaði Morgunblaðsins er sagt frá því að hann hafi fyrst sent bréf í faxtæki á Umferðarmiðstöðinni þar sem hann sagðist vilja „kynnast með kvenmaður frá Ísafold, með tilgangur bréfaviðskipti.“
Slíkur var metnaðurinn hjá honum að hann skrifaði bréfið með hjálp fimmtíu ára gamallar dansk-íslenskrar orðabókar, og annarrar ensk-íslenskar. Ekki er sagt frá því hvort að hann hafi talað dönsku, en bað móttakanda um að afsaka málfræðivillurnar. En hann lofar þó bót og betrun því að í eftirskrift með bréfinu lofar hann að æfa sig í íslenskunni:
„Ég geri mér það að reglu að lesa Njálu einu sinni á ári.\"
Eftir þessi bréf skrifaðist Gleb á við íslensk dagblöð og tímarit í tíu ár. Árið 2005 var honum að lokum boðið til Íslands, en líklega hefur hann ekki fundið sér konu á þeim tveimur vikum sem hann dvaldi hér.