Uppfinningamaðurinn Peter Madsen var í dag dæmdur í lífstíðarfangelsi fyrir morðið á Kim Wall. Madsen er 47 ára og eigandi kafbátsins Nautilus sem Wall, þrítug sænsk blaðakona ætlaði fjalla um. Wall vildi skrifa um geimferðarhugmyndir Madsens og silgdi með Maden til hafs á kafbátnum þann 10. ágúst á síðasta ári.
Málið er umtalaðasta morðmáli síðari ára í Danmörku. Á meðan dómarinn las upp niðurstöðuna horfði Madsen niður fyrir sig í dómssalnum.
Sjaldgæft er að svo þungur dómur sé kveðinn upp í Danmörku. Þessi langa refsing helgast m.a. af því að dómarinn álítur að Madsen hafi skipulagt morðið og brotið kynferðislega gegn Wall, segir í frétt Morgunblaðsins í dag. Meira hér og hér.