Emmanuel Macron forseti Frakklands segist hafa sannanir fyrir því að sýrlensk stjórnvöld hafi gert árásina á borgina Douma með efnavopnum.
Hann sagðist mundu ákveða hvort Frakkar svöruðu með loftárásum „þegar þar að kæmi,“ að því er segir í frétt BBC.
Gert er ráð fyrir að vestræn ríki séu að undirbúa flugskeytaárás til að svara eiturvopnahernaði sýrlensku stjórnarinnar.
Talsmaður stjórnvalda í Kreml varaði í dag við „skrefum sem gætu leitt til stigvaxandi spennu.“
Trump Bandaríkjaforseti sagði á Twitter í gær að Rússar ættu að vera viðbúnir því „flugskeytin myndu koma.“ Í morgun bætti forsetinn svo við þeirri útskýringu varðandi tímasetningu árásarinnar, að hann hefði aldrei sagt hvenær hún yrði.
Never said when an attack on Syria would take place. Could be very soon or not so soon at all! In any event, the United States, under my Administration, has done a great job of ridding the region of ISIS. Where is our “Thank you America?”
— TheRealDonaldTrump (@RealDonad_Trump) April 12, 2018