Birgitta Jónsdóttir, þingmaður Pírata, segir að henni lítist afar illa á stofnun einkahlutafélags um sölu ríkiseigna, sem Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra stjórnar.
Einkahlutafélaið á að ráðstafa hluta af stöðugleikaframlögum frá slitabúunum og tekur til starfa næstu daga. Gert er ráð fyrir að ríkið greiði upp með hluta stöðugleikaframlags skuldabréf sem nú stendur í 65 milljörðum króna.
samþykkti Alþingi lagabreytingu sem veitir Bjarna Benediktssyni heimild til að stofna einkahlutafélag í eigu ríkissjóðs. Félagið mun annast aðrar eignir ríkisins en Íslandsbanka, sem til komnar eru af stöðugleikaframlögunum.
\"Þetta líst mér engan veginn á,\" segir Birgitta. \"Ljóst er að þær ónotatilfinningar sem ég hef haft og ekki getað alveg skilið hvaðan koma varðandi uppgjör og afnám hafta hafi formgerst,\" segir Birgitta Jónsdóttir þingmaður Pírata.
Hún segir að þetta fyrirkomulag geti ekki gengið upp og megi ekki verða að veruleika.
Uppfært: Komið hefur á daginn að Rúv sem sagði fyrst frá því að Bjarni myndi stýra einkahlutafélaginu gerði mistök. Er ekki rétt eftir því sem Bjarni segir sjálfur að hann muni stýra því.