Lýtaaðgerðir: vilja líkjast kardashian

Sífellt fleiri fara í lýtaaðgerður til að líta út eins og Kardashian-systurnar. Þetta kemur fram í umfjöllun á vef Huffington Post, en þar segir að systurnar hafi haft gríðarleg áhrif á val fólks á lýtaaðgerðum og að aðgerðir á vörum og rössum hafi fjölgað mikið.

Í umfjöllun Huffington Post, sem vitnað er til á vefmiðlinum nutiminn.is í dag kemur fram að beiðnum um að líta út eins og Kardashian-systurnar hafi fjölgað um 73 prósent á breska lýtalækningastöðinni Transform.

Þá kemur fram að beiðnum um varafyllingar hafi fjölgað um 700% á einni nóttu í maí eftir yngsta systirinn, Kylie Jenner, viðurkenndi í þættinum Keeping Up With the Kardashians að hafa látið fylla í varir sínar. Þá hefur beiðnum um rassafyllingar fjölgað um 54% en fólk tiltekur sérstaklega að það vilji rass eins og Kim eða Khloe.

Í Bandaríkjunum eru svipaðir hlutir að gerast. Huffington Post vitnar í umfjöllun tímaritsins People þar sem kemur fram að beiðnum um að líkjast Kardashian-systrunum hafi fjölgað mikið á meðal bandarískra lýtalækna.

Í frétt NBC fyrr á árinu kom fram að samtök lýtalækna í Bandaríkjunum telji að fjöldi rassaaðgerða hafi tvöfaldast á milli ára 2013 og 2014 og að sérstökum brasilískum rasslyftiaðgerðum hafi fjölgað um 15%, að því er segir í þessari samantekt á vef Nútímans.

Pistill: Rassgatið á Kim Kardashian

Lýtalæknirinn Dr. Terry Dubrow sagði í samtali við fréttavef Yahoo! að brjóstaaðgerðir séu ekki eins algengar og áður, nú snúist allt um rassana.