Lýsa yfir stuðningi við aðgerðir eflingar

Starfsgreinasamband Íslands hefur sent frá sér yfirlýsingu þess efnis að sambandið lýsi yfir stuðningi við baráttu Eflingar og annarra stéttarfélaga við að tryggja réttindi launafólks.

Starfsgreinasambandið segir að allt of mörg alvarleg tilvik eigi sér stað þar sem brotið sé á réttindum og kjörum fólks sem starfar fyrir starfsmannaleigur.

„Starfsmannaleigur hafa verið að ryðja sér til rúms á íslenskum vinnumarkaði í auknum mæli á undanförnum misserum og hafa komið upp allt of mörg alvarleg tilvik um brot á réttindum og kjörum starfsfólks á þeirra vegum. Þau fyrirtæki sem nota starfsmannaleigur verða að gera sér grein fyrir að þau bera fulla ábyrgð, skv. lögum um keðjuábyrgð, á því að starfsmenn sem þau ráða í gegnum slíkar leigur njóti sambærilegra lög- og kjarasamningsbundinna lágmarkskjara og aðrir starfsmenn.“

Þá segir sambandið að það muni nota öll tæki og aðferðir sem það hefur yfir að ráða til að stöðva slíkt háttalag.

Það er algjörlega ólíðandi að það sé ítrekað brotið á erlendu starfsfólki sem kemur hingað til lands á vegum starfsmannaleiga og mun Starfsgreinasambandið nota öll tæki og aðferðir sem það hefur yfir að ráða til að stöðva slíkt háttalag og standa þétt við bakið á félagsmönnum og stéttarfélögum í þeirri baráttu.