Lýsa yfir áhyggjum af öryggismálum í skólum - brotið gegn stúlku í austurbæjarskóla á skólatíma

Stjórn og starfsfólk Heimilis og skóla lýsa yfir áhyggjum af aðgengi og öryggismálum skóla og eru tvö nýleg atvik tilefni þessa erindis.

„Við skorum á mennta- og menningarmálaráðuneyti og sveitarfélög landsins að taka þessi mál til gagngerrar endurskoðunar og setja viðmið þar að lútandi,“ segir í tilkynningu frá Heimili og skóla.

Í byrjun september 2019 kom upp alvarlegt atvik í Austurbæjarskóla þar sem átti sér stað brot gegn barni á skólatíma. Einnig hefur borið á því undanfarið að losað hefur verið um skrúfur og dekk á hjólum skólabarna en í upphafi mánaðar slasaðist drengur illa þegar hann tvíhandleggsbrotnaði eftir slíkan hrekk. Þá eru þjófnaðir í skólum ekki óalgengir þar sem fatnaði og öðrum verðmætum er stolið frá börnum.

Samtökin Heimili og skóli segja að þau vilji að skólar séu öruggur staður fyrir börn og að þau upplifi sig örugg þar. Þau mæla með því að öryggismál í skólum landsins verð endurskoðuð, meðal annars með að starfsmenn skólanna séu vel merktir.

„Sem betur fer eru atburðir eins og sá fyrsti sem hér er lýst ekki algengir en þegar svona alvarlegur glæpur á sér stað í grunnskóla hlýtur það að vera tilefni til að staldra við og fara yfir öryggisferla, viðbragðsáætlanir og eftirlit með nemendum. Við viljum að skólinn sé öruggur staður fyrir börn þar sem þau upplifa sig örugg og líður vel en geta jafnframt leikið sér frjáls við tryggar aðstæður. Við mælumst því til þess að öryggismál og aðgangsstýring verði endurskoðuð frá grunni í skólum landsins og skýrt sé hverjir starfa við skólann, til dæmis með því að merkja starfsmenn og kenna börnum að leita aðeins til merktra starfsmanna.“