Lyfjamengun í vatni eykst

Mengun af völdum lyfseðilsskyldra og annarra löglegra lyfja ógnar lífríki í vötnum.

Lífverur í ám og fljótum víða um heim eru í mikilli hættu vegna mengunar af völdum lyfseðilsskyldra og annarra löglegra lyfja, segir í frétt sem birtist á ruv.is. Þar segir að haldi áfram sem horfir muni magnið af slíkum lyfjaúrgangi aukast um tvo þriðju fyrir árið 2050. 

Vitnað er í frétt á vef The Guardian sem fær heimildir sínar frá vísindamanninum Francesco Bregoli sem starfar við Delft stofnunina í Hollandi. Bregoli er einnig leiðtogi alþjóðlegs rannsóknarhóps sem fylgist með lyfjamengun í ám og fljótum. Hann segir stóran hluta lífkerfis í ferskvötnum í verulegri hættu vegna lyfjamengunar. 

Algengt bólgueyðandi lyf sem nefnist diclofenac rennur til að mynda í gríðarlegu magni út í ferskvötn. Bregoli og lið hans notuðu þetta lyf til að meta mengun lyfja í lífkerfum vatna. Í greininni segir að um 2.400 tonn af diclofenac sé tekið inn árlega. Fólk losar nokkur hundruð tonn af því í úrgangi sínum, og aðeins um sjö prósent þess er síað í frárennsliskerfum. Vísindamennirnir tóku sýni úr 1.400 mælingarstöðvum um allan heim.

Síunarbúnaðir skólpst dregur úr menguninni er telst langt í frá nóg til að stemma stigu við þessari þróun.

Greinina á Guardian má nánar lesa hér.