Mjög mikið álag hefur verið á mörgum starfseiningum undanfarið hjá Sjúkrahúsinu á Akureyri. Þetta segir Halldór Jónsson, framkvæmdastjóri spítalans, í nýjum pistli sem hann birtir á heimasíðu spítalans og birtir áhugaverða tölfræði máli sínu til stuðnings.
Fram kemur hjá framkvæmdastjóranum að á tímabilinu jan-sept fækkaði legudögum um 1,8% á milli ára sem skýrist af verkföllum heilbrigðisstétta. Legudögum hafi þó fjölgað verulega í ágúst og september, ekki hvað síst á skurðlækningadeild.
Starfsemisaukning hafi orðið á dagdeildum upp á 9,3%. Sjúkraflug fyrstu níu mánuði ársins voru 452 eða 20 fleiri en á síðast ári. Slysadeildarkomur séu 1,8% fleiri og myndgreiningar um 3,7% fleiri. Einna mesta athygli vekur sú t-lfræði framkvæmdastjórans að lyfjablandanir í apóteki hafi aukist verulega undanfarin ár og séu nú 17,7% fleiri en á sama tíma í fyrra.
„Verkfall sjúkraliða í SLFÍ og hjúkrunarnema í SFR gera það ástand sem fyrir er enn snúnara, skapar óöryggi og óþægindi fyrir alla. Við skorum á deiluaðila að ná samkomulagi sem fyrst áður en verkföllin valda frekari röskun,“ segir Halldór Jónsson, framkvæmdastjóri Sjúkrahússins á Akureyri.