Lúxushótelasmiður hraunar yfir löggur og Pírata – Björn Leví: „Klassík hjá Sjöllum“

Jóhannes Stefánsson, framkvæmdastjóri Lindarvatns sem reisir lúxushótel við Austurvöll, segir Ríkisútvarpið og Pírata sýna tvöfalt siðgæði í Ásmundarsalarmálinu. Í grein sem hann skrifar á vef Vísis lætur Jóhannes lögregluna einnig fá það óþvegið í málinu.

Hann rifjar upp ummæli lögreglumannanna tveggja sem töluðu um „framapotara“ í Sjálfstæðisflokknum og að lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hafi tvisvar þurft að senda upptökur til eftirlitsnefndar með störfum lögreglu. Í ljós hefur komið að það voru eigendur Ásmundarsalar sem létu nefndina, sem skipuð er Sjálfstæðismönnum, vita af ummælunum á búkmyndavélinni.

„Framhaldið þekkja flestir, þar sem starfsmenn lögreglu áttu við sönnunargögn til að leyna samtalinu. Nú er til skoðunar hvort sömu brögðum hafi verið beitt við rannsókn annarra mála, þar sem hljóðupptaka hefur ýmist gleymst, bilað eða þar fram eftir götunum. Þessi þáttur málsins er því miður grafalvarlegur og til þess fallinn að rýra traust almennings á störfum lögreglu,“ segir Jóhannes.

Hann beinir svo spjótum sínum að RÚV: „Það hefði mátt búast við að niðurstaða eftirlitsnefndar um fölsuð sönnunargögn hjá lögreglu ætti brýnt erindi við almenning, að mati fjölmiðla. Það kom því verulega á óvart hvernig Ríkisútvarpið, sem flutti tugi frétta um málið þegar það virtist snúast um partístand ráðherra, taldi ákvörðun nefndarinnar ekki jafn fréttnæma. Þannig rataði niðurstaðan ekki inn í kvöldfréttir þegar hún leit dagsins ljós, hvorki klukkan sjö né tíu.“

Þá segir Jóhannes Pírata og lögregluna hafa tekið höndum saman: „Þar er ný saga í smíðum sem gengur út á að nú sé með einhverjum hætti brotið gegn hinum ónafngreindu lögregluþjónum. Samtalið, sem átti sér stað milli einkennisklæddra lögregluþjóna, á vettvangi lögreglurannsóknar og um þá sem rannsóknin snerist beinlínis að, stjórnmálaskoðanir þeirra og fréttaflutning um málið, hafi verið einkamál. Persónuvernd eigi að blanda sér í málið,“ segir Jóhannes.

„Einn góður þingmaður Pírata hefur jafnframt kallað eftir því að þingnefnd hafi pólitísk afskipti af rannsókn eftirlitsnefndar með störfum lögreglu. Ætla má að það væri annað hljóð í þingmanninum ef lögregla hefði ekki beint spjótum sínum að Sjálfstæðis-, heldur Pírataframapoturum. Tvöfalda siðgæðið leynist víða.“

Björn Leví Gunnarsson, þingmaður Pírata, svarar honum á Facebook. „Áhugavert, höfundur gerir ráð fyrir því að það væri annað hljóð ef lögregluþjónarnir hefðu talað svona um Pírata. Ekki hef ég hugmynd um hvers vegna. Líklega vegna þess að hann hefði brugðist öðruvísi við sjálfur.“

Hann hafnar alfarið að vera með tvöfalt siðgæði. „Það er klassík hjá Sjöllum að gera öðrum upp skoðanir og ráðast svo að þeim. Það kallast að búa til strámann. Sjórnmálaskóli Sjálfstæðisflokksins 101 í hnotskurn hérna.“

Björn Leví segir einfalda ástæðu fyrir því hvers vegna þingnefnd ætti að skoða málið. „Lögreglumenn eru gagnrýndir fyrir einkasamtal sem hafði ekki nein áhrif á störf þeirra á vettvangi, enda kvartaði enginn undan því. Kvartað var undan dagbókarfærslu sem lögreglumennirnir skrifuðu ekki. Eftirlitsnefndin grautar saman ummælum lögreglumanns í einkasamtali við getu hans til að sinna störfum sínum af hlutlægni. Píratar hafa kallað eftir fundi til að kanna hvort þessar opinberu ávítur standist lög og reglur.“