Lúsmý veldur usla í sumarbyggð

Ný tegund skorkvikynda, svokallað lúsmý, hefur numið hér land og er farið að plaga fjölda fólks í sumarhúsabyggðum veggja vegna Hvalfjarðar. Fjölmargar tilkynningar um bit frá þessum vargi hafa borist Náttúrufræðistofnun undanfarna daga.

Lúsmý hefur ekki áður gert vart við sig hér á landin svo vitað sé, en fram kemur á vef Náttúryfræðistofnunar að lúsmý sé af ætt örsmárra mýflugna sem langflestar sjúgi blóð úr öðrum dýrum. Þessar tegundir flugna séu þekktar í nágrannalöndum Íslands og leggist sumar á mannfólk.

Fram kemur að þeir sem voru bitnir í Hvalfirði voru flestir illa útleiknir en ekki er vitað með vissu hvernig flugurnar komu til landsins eða af hverju þær birtust hér skyndilega: \"Þessi atburðarás á nokkrum stöðum er undarlega samstillt í tíma. Einhverjar veðurfarslegar aðstæður hljóta að liggja þar að baki. Ekki er nokkur leið að geta sér til um upphaf þessa máls. Hvenær bárust mýflugurnar til landsins, hvaðan og hvernig? Og hví varð ekki vart við þær víðar? Það verður áfram fylgst með þessu máli,\" segir á vef stofnunarinnar.

\"Flugurnar kunna að hafa farið í útrás frá einhverju nágrannalandi, gert innrás í Ísland og árás og okkur landsmenn!,“ segir þar enn fremur.