Lúsmý herjar á höfuðborgarsvæðið

Lúsmý herjar nú orðið á höfuðborgarsvæðið, en þess hefur orðið vart bæði í Mosfellsbæ og Grafarvogi, en var í síðasta mánuði staðbundið að því er virtist við Kjósina og Hvalfjarðarstrandarhrepp.

Lúsmý er hvimleitt skorkvikindi sem sýgur blóð úr mönnum eins og öðrum þeim dýrum sem það kemst í návígi við. Bitið veldur verulegum útbrotum sem kalla fram mikinn kláða og óþægindi - og eru nokkuð mörg dæmi þess að fólk hafi steypst út í útbrotum á handleggjum, höndum og fótum eftir að hafa verið bitið af pöddunni.

Lúsmý hefur ekki áður gert vart við sig hér á landi svo vitað sé, en fram kemur á vef Náttúryfræðistofnunar að lúsmý sé af ætt örsmárra mýflugna sem langflestar sjúgi blóð úr öðrum dýrum. Þessar tegundir flugna séu þekktar í nágrannalöndum Íslands og leggist sumar á mannfólk.

Erlingur Ólason skordýrafræðingur hefur orðað það svo að ekkert nema almennilegt kuldakast geti dregið úr útbreiðslu þessa nýja landnema á Íslandi - og vilji fólk losna við hann verði það að vonast eftir lélegu sumri.