Lúsmý elskar blóð vinstri grænna: hefur lítinn áhuga á pírötum

Stuðningsmenn Vinstri grænna eru líklegastir til að hafa verið bitnir af lúsmýi. Rúmur þriðjungur þeirra, eða 34 prósent, hafa verið bitin. Þá höfðu 32 prósent stuðningsmanna Viðreisnar og 30 prósent Framsóknarmanna verið bitin.

Frá þessu er greint í Fréttablaðinu í dag. Þar kemur einnig fram að 23 prósent landsmanna hafa verið bitin af Lúsmý síðasta árið samkvæmt könnun Zenter sem gerð er fyrir Fréttablaðið og Fréttabladid.is

Í könnuninni kemur fram að aðeins 16 prósent stuðningsmanna Pírata hafa verið bitin og 19 prósent Sjálfstæðismanna og Miðflokksmanna en eins og áður segir er lúsmýið mest sólgið í blóð Vinstri grænna.