Ása Atladóttir, hjúkrunarfræðingur hjá Embætti landlæknis, segir það gamla mýtu hjá fólki og nokkuð útbreidda að höfuðlús í börnum skýrist af sóðaskap eða óhreinlæti.
Hún segir að lúsin geti fundist í öllu hári og það hafi sýnt sig að hún hafi aðlagað sig manninum svo vel, að hún fyrirfinnist alls staðar, líka hjá fullorðnum.
Ása var meðal gesta í þættinum Ég bara spyr, sem sýndur var á Hringbraut í kvöld, en hann verður endursýndur í dag og einnig sjáanlegur á vef Hringbrautar.
Hún segir að í dag þurfi ekki lengur að kaupa lyf við lús eins og áður var. Fólk þurfi samt að varast það að trúa öllu því sem auglýst er. Þannig séu ýmiss efni seld sem meðferðarefni gegn lús, sem hreinlega virki ekki. Vísbendingar eru um að lúsartilfellum hafi fjölgað árin 2012 til 2013, en svo virðist sem þeim hafi fækkað aftur árið 2014.
Að sögn Ásu, þyrfti Embætti landlæknis hins vegar helst að búa yfir sölutölum efna gegn lús, til að geta áttað sig betur á fjölda tilfella sem koma upp á ári.
Þátturinn Ég bara spyr er gagnvirkur sjónvarpsþáttur sem byggir á fyrirspurnum almennings. Áhorfendur eru hvattir til að senda fyrirspurnir til Spyr.is, en þaðan er valið úr svörum í hverri viku, til að ræða nánar í þættinum Ég bara spyr á Hringbraut.
Þátturinn er frumsýndur öll þriðjudagskvöld klukkan 20:30.