Lukka ræðir um apótek framtíðarinnar

Finnst þér að læknavísindin þyrftu að hverfa meira til fortíðar, minnka lyf og nýta betur náttúruleg efni, spurði Lukka Pálsdóttir í nýjasta þættinum af Heilsuráðum sem var á dagskrá Hringbrautar í gærkvöld.

\"Ég vil ekki endilega tala um fortíðina í þessum efnum, enda tel ég að hér sé um læknavísindi framtíðarinnar að ræða,\" minnir Lukka á í þessum þætti sínum þar sem hún fer yfir matar- og lífsstílsmenningu landsmanna, en þáttinn má sjá hér á vef stöðvarinnar: \"Apótek framtíðarinnar gæti verið að finna í ísskápnum þínum, í görðunum og gróðurhúsunum og í hafinu,\" bendir hún á og bætir við: \"Lækningin felst í forvörnunum, því mikill meirihluta þeirra sjúkdóma sem hrjá okkur eru langvinnir lífsstílstengdir sjúkdómar.\"

Hún segir mikinn forvarnarmátt búa í fæðunni okkar: \"Og við þurfum ekki endilega að lifa einhverjum meinlætalífsstíl til að njóta góðrar heilsu,\" segir Lukka og ráðleggur fólki frekar að finna leið til að gera hollan mat bragðgóðan og spennandi. 

Og hér talar Lukka af sannfæringu: \"Læknisfræðin er í stöðugri þróun sem betur fer og þegar við lítum til baka í dag finnst okkur sumt hlægilegt sem þótti gott og gilt fyrir nokkrum áratugum. Ef við tökum krabbameinslækningar sem dæmi þá var ekki farið að beita lyfjameðferðum eins og við þekkjum þær í dag fyrr en milli 1950 og 1960. Ég er sannfærð um að þegar við munum líta til baka eftir 50 ár í viðbót mun okkur finnast skrýtið að hafa ætlað að lækna krabbamein með því að dæla í líkamann eitri en gleyma að huga að því að byggja upp ónæmiskerfið og gera hann sterkari. Það þýðir ekkert að ná tökum á krabbameinsvexti með því að drepa það og fara svo heim og borða unnar kjötvörur og sælgæti og vera svo hissa á að krabbinn komi aftur,\" segir Lukka.

Vissulega sé það ennþá svo að við þurfum lyfin og aðgerðirnar \"en það er eftirleikurinn sem skiptir öllu máli svo meinið nái sér ekki á strik aftur. Það er sem betur fer að verða mikil hugarfarsbreyting í heilbrigðiskerfi okkar í dag og metnaðarfullir læknar  hvetja sjúklingana sína til að huga að bættum lífsstíl.\"

Heilsuráð Lukku eru frumsýnd öll mánudagskvöld klukkan 21:15 og endursýnd í dag og á miðvikudagskvöld.