Telur erlenda benkaeign auka samkeppni


Friðrik Már Baldursson prófessor í hagfræði við Háskólann í Reykjavík telur æskilegt að minnst einn viðskiptabanki á Íslandi sé í eigu útlendinga því það myndi auka líkurnar á eðlilegri samkeppni í bankakerfinu.

 

Friðrik Már, sem var gestur Páls Magnússonar á Þjóðbraut í gærkvöld er andvígur hugmyndum um að Landsbankinn verði áfram í eigu ríkisins, en þar er hann algerlega á öndverðum meiði við Frosta Sigurjónsson þingmann Framsóknarflokksins og formann efnahags- og viðskiptanefndar Alþingis, sem einnig var gestur Páls í þættinum, en hann vill ekki sjá það að útlendingar eignist íslensku viðskiptabankanna þegar þeir verða seldir. Frosti segir að þá flytjist hagnaður bankanna til útlanda en nýtist ekki í íslenskri atvinnuuppbyggingu. Frosti vill að Landsbankinn verði það sem hann kallar samfélagsbanka og áfram í eigu ríkisins, en æskilegir kaupendur hinna bankanna væru íslenskir lífeyrissjóðir.

 

Málaefnaleg umræða þeira Frosta og Friðriks fór annars um víðan völl, en meðal annars fjölluðu þeir á mannamáli um losun hafta og stöðugleikaskatt fyrir utan það að takast á um eignarhald á íslenskum bönkum.

 

Hægt er að nálgast þátt Páls á hringbraut.is í heild sinni og klippum.