Löng fjárlagaumræða á ábyrgð stjórnar

Umræður um fjárlög hafa breyst á þann veg að þær bera aukin merki um skoðanaskipti um einstök fagsvið eins og heilbrigðismál eða menntamál. Slíkar umræður hafa hefðbundið farið fram þegar rædd hafa verið ráðherrafrumvörp en þau eru færri nú en áður þekkist.

Þetta er á meðal ástæðna þess að umræða um fjárlög hvers árs hefur lengst, en ríkjandi stjórnvöld hafa ekki sett fram mál sem tengjast þessum stóru póstum svo nokkru nemi.  

Þetta kom fram í samtali Katrínar Jakobsdóttur og Katrínar Júlíusdóttur alþingismanna við Ólafanna í þætti þeirra á Hringbraut í gærkvöld, en hann má sjá hér á vef stöðvarinnar. Þátturinn verður endursýndur í dag, en þar fóru Katrínarnar yfir sviðið í íslenskri pólitík eins og þeim einum er lagið.

Ólafarnir eru frumsýndir öll fimmtudagskvöld á Hringbraut.