Mjög langar biðraðir hafa víða skapast í dag eftir dekkjaskiptum á hjólbarðaverkstæðum. Spáð er 11 stiga frosti eftir hlýtt og langt haust.
Hvergi voru biðraðir sennilega lengri en á Akureyri en í morgun. Enda er aðeins dagaspursmál samkvæmt veðurspánni hvenær bláar tölur leysa hinar rauðu og hlýju af hólmi eftir milt og gott haust. Spáð er 3ja stiga frosti fyrir norðan frá og með miðri viku og 11 stiga frosti næsta mánudag.
Norðanlands dugar lítt að aka um á sumardekkjum þegar vetrardrottningin boðar komu sína. Hafa hundruð ökumanna skipt yfir á betri vetrarbúnað síðustu klukkustundir og margir létu sig hafa það að bíða lengi eftir afgreiðslu eins og við Dekkjahöllina í morgun þar sem fjölmiðlamaður Hringbrautar á Akureyri tók þessa mynd á ellefta tímanum.
Sunnan heiða aka mun fleiri á heilsársdekkjum og hafa ekki borist fregnir af mjög miklu annríki hjá dekkjaverkstæðum á höfuðborgarsvæðinu. Þó er „töluvert mikið að gera“ eins og einn starfsmaður dekkjaverkstæðis í Reykjavík orðaði það.