Á undanförnum mánuðum hafa greinst tvö tilfelli af lömunarveiki í Úkraínu. Um er að ræða sýkingu af völdum lömunarveikiveiru sem er í bóluefninu sem þar er notað.
Þetta kemur fram á vef Embættis landlæknis þar sem segir að litlar líkur séu á að lömunarveiki berist til Íslands frá Úkraínu en einstaklingar sem hyggi á ferðir til Úkraínu séu beðnir um að láta bólusetja sig áður en farið er af stað hafi þeir ekki verið bólusettir á síðustu 10 árum. Á Íslandi er bólusett gegn lömunarveiki við 3, 5 og 12 mánaða aldur og örvunarbólusetning gefin við 4 ára og 12 ára aldur.
Þátttaka á Íslandi í bólusetningu gegn lömunarveiki hefur verið um 95% nema við 4 ára aldur þar sem þátttakan hefur verið um 85%.
Fram kemur á vefnum að í Úkraínu hefur verið notað bóluefni gegn lömunarveiki sem inniheldur lifandi en veiklaðar veirur. Í sjaldgæfum tilfellum geta þessar veirur breytt sér og valdið lömunarveiki hjá óbólusettum einstaklingum.
Í Úkraínu hefur þátttaka í bólusetningu gegn lömunarveiki verið slök og þannig geta veirur úr bóluefninu borist í óbólusetta einstaklinga og í sjaldgæfum tilfellum valdið lömunarveiki.
Á Íslandi hefur hins vegar aldrei verið notað bóluefni gegn lömunarveiki sem inniheldur veiklaðar veirur. Einungis hefur verið notað bóluefni sem inniheldur dauðar veirur sem ekki valda sýkingu.