Leikkonan Ólafía Hrönn Jónsdóttir er gestur Völu Matt og hjálparkokksins Alberts Eiríkssonar á Hringbraut í kvöld, en hún er síðasti keppandinn í keppninni Besti maturinn - og ráðast úrslitin að viku liðinni.
Lolla, eins og leikkonan er jafnan kölluð, fer létt með að lokka fram dýrindisrétti á einfaldan og ódýran máta, en þar er einmitt formið á þáttunum komið; að elda hollan og góðan mat fyrir eins lítinn pening og með eins lítilli fyrirhöfn og hugsast getur, en þátttakendur í keppninni hafa 3000 krónur til umráða fyrir aðalrétt og eftiirétt. Hér gildir því hagkvæmni og hugmyndaauðgi.
Meðal fyrri keppenda í þáttum Völu eru Kalli og Tobba Marinós, Ellý Ármanns og Freyr Einars, Margrét Jónasar, Hannes og Guðrún Gunnars, Nína Björk og Aron Karls, svo og Sigga Kling og Díanna Ómel.
Keppnin: Bestir maturinn hefst á Hringbraut klukkan 20:00 í kvöld.