Lögreglustjórarnir á Norðurlandi eystra, Austurlandi og Suðurlandi hafa ákveðið að minnka lokunarsvæðið umhverfis Holuhraun umtalsvert. Nýja lokunarsvæðið nær 20 m útfrá norður jaðri nýja hraunsins, Dyngjujökli í suðri, farvegi Jökulsár á Fjöllum í austri og vestustu kvíslar Jökulsár á Fjöllum í vestri. Ákvörðunin er tekin út frá hættumati Veðurstofu Íslands, að því er segir í tilkynningu frá Almannavörnum sem leggur til að Veðurstofa Íslands fari í mótvægisaðgerðir til að auka öryggi almenningis í nágrenni hins nýja lokunarsvæðis.
Lögreglan í samstarfi við Vatnajökulsþjóðgarð mun vera með viðveru á svæðinu til þess að gæta öryggis og vinna náið með vakt Veðurstofunnar. Þá er stefnt að því að koma upp frekari mælibúnaði sem tengdur er vöktunarkerfi Veðurstofunnar og auka þannig vöktun á svæðinu svo gefa megi út viðvaranir verði talin ástæða til. Vatnajökulsþjóðgarður mun hnitsetja og merkja áhugaverða útsýnisstaði fyrir ferðamenn, þar sem aðgengi er auðvelt og fljótlegt að rýma svæðið ef ástæða verður til.