G. Pétur Matthíasson, upplýsingafulltrúi Vegagerðarinnar, segir að aldrei hafi orðið eins víðtækar lokanir á landinu öllu eins og í óveðrinu á mánudaginn síðastliðinn.
Upplýsingafulltrúinn segir einnig að Vegagerðinni hafi ekki tekist áður að opna jafnauðveldlega og fljótlega eins og gekk á þriðjudag. Það megi rekja til breytts verklags hjá Vegagerðinni. Hún loki nú fjallvegum áður en veður skellur á, því lengri tíma taki að opna vegina aftur þegar bílar sitja fastir á vegunum.
Einnig loki Vegagerðin fjallvegum nú vega hvassviðris, en ekki bara vegna mikils snjóþunga og ófærðar á vegum.
Lesa má fyrirspurn lesanda og svar G. Péturs Matthíassonar á spyr.is hér.