Jæja, loksins má sjá tveggja stafa hitatölur í veðurkortum vikunnar framundan.
„Hægt og bítandi hlýnar á landinu næstu daga og er útlit fyrir að miðvikudagur og fimmtudagur verði þeir hlýjustu í vikunni,“ segir veðurfræðingur Veðurstofunnar í hugleiðingum dagsins á vedur.is.
Ef spákortin eru skoðuð sést hækkani hitastiga frá þriðjudagi og svo loks 10 stiga hitatala á Norðausturlandi í spákorti miðvikudagsins. Spárnar gera síðan ráð fyrir að hitastigið sígi svo dálítið niður aftur um næstu helgi.
Um úrkomuna sem fylgir þessum vorvindum vikunnar segir veðurfræðingurinn: „Til að fá svona hlýindi þarf að fá loft ættað langt sunnan úr höfum og því fylgir gjarnan væta og þannig verður það einnig í þetta sinn. Hins vegar verður ójafnt gefið því rigningin verður einkum bundin við vestanvert landið og eitthvað austur með suðurlandinu og aðrir landshlutar gætu fengið einhverja úrkomu síðan um helgina þegar kólnar aftur.“