Loksins eru vindar og veðurkerfi yfir Íslandi að breyta sér í þá veru sem kemur íbúum um norðan- og norðaustanvert landið vel; útsynningurinn gamalkunni er að taka við af þtrálátum norðanáttum með vel kunnum hlýindum fyrir norðan.
Þessar breytingar á veðri sem hefjast í dag merkja 16 til 18 stiga hita um samfellt Norðurland á morgun og næstu daga og raunar fram yfir helgi, en það er á að giska 10 gráðum meiri hiti en oft hefur verið á þessum slóðum í sumar, svo sem á svæðinu austan Húsavíkur.
Skúraleiðingar verða viðvarandi um sunnan- og suðvestanvert landið á meðan norðanmenn njóta sólar og heiðríkju að mestu - og hiti verður þar um og undir 10 gráðum.