Klifun Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar, fráfarandi forsætisráðherra, um heimsmet eigin verka er kunn en loks liggur fyrir að heimsmet hafi í raun verið slegið. Heimsmet hefur verið slegið í spillingu og varðar eignir ráðherra í íslenskri ríkisstjórn í skattaskjólum. Þetta segir Steingrímur J. Sigfússon, þingmaður VG. Ummæli hans féllu í fyrirspurnatíma á Alþingi í morgun.
Steingrímur var að spyrja Bjarna Benediktsson í fyrirspurnatíma og hafði fjármálaráðherra svarað gagnrýni Steingríms að nú væri tækifæri til betrumbóta. Steingrímur reiddist þá nokkuð í ræðustóli. Hann sagði að Bjarni væri brattur að tala um tækifæri í landkynningu eins og nú háttaði til. Væri ekki veruleikinn sá að loks væri komið fram heimsmetið sem nú Sigmundur Davíð hefði klifað á. Heimsmetið lyti að spillingu. Það væri heimsmet að íslensk ríkisstjórn ætti þrjá ráðherra með félög í skattaskjólum, að auki mætti finna nokkra borgarfulltrúa og 600 landsmenn. Þetta væri allt í boði sömu flokka , Framsóknar og Sjálfstæðisflokksins, fortíð nýfrjálshyggjunnar væri að elta þessa flokka uppi en því miður blæði þjóðinni á meðan.