Fjórði og síðasti þáttur Páls Magnússonar, Fíkn, verður sýndur á Hringbraut í kvöld.
Þættirnir eru unnir í samstarfi við SÁÁ og verður í kvöld rætt við Arnþór Jónsson, formann SÁÁ. Í þættinum verður m.a. rætt um stækkun Víkur.
Arnþór segir að íslenska leiðin við meðhöndlun á fíkn byggist fyrst og fremst á auðveldu aðgengi sjúklinga að afkastamikilli og ódýrri meðferð sem sé rekin á ábyrgð lækna, er grundvölluð á vísindalegri þekkingu í læknisfræði, sálarfræði og félagsvísindum og bindi sig því ekki við neina eina meðferðarhugmynd.
\"Hjá SÁÁ byggir hún auk þessa á faglegu og nákvæmu fjárhagsbókhaldi, skipulagðri áætlanagerð og heiðarleika í öllum rekstri.\"
\Þátturinn verður sýndur á Hringbraut í kvöld klukkan 20 og svo endursýndur kl 22.