Margt bendir til þess að lokaritgerð sem nýútskrifaður viðskiptafræðinemi skilaði í Háskóla Íslands, og fjallar um ferðaþjónustu á Suðurlandi, sé uppspuni frá rótum.
Ritgerðin sem hér um ræðir byggir meðal annars á viðtölum við ferðaþjónustuaðila á svæðinu, þar á meðal Friðrik Pálsson hótelstjóra á Hótel Rangá. Í Fréttablaðinu í morgun staðfesti Friðrik að höfundur ritgerðarinnar hefði aldrei rætt við sig. Ummæli sem höfð eru eftir honum séu því uppspuni og bætir hann við að ýmis töluleg gögn sem vitnað sé til í ritgerðinni séu skálduð. Hann hafi gert Háskóla Íslands viðvart vegna þessa.
Friðrik komst á snoðir um málið þegar hann fékk ábendingu um að fram væri komin ritgerð sem byggðist meðal annars á rekstri hans. Hann kannaðist þó ekkert við að hafa svarað spurningum frá ritgerðarhöfundi. Strax í kjölfarið vakti hann athygli viðskiptafræðideildar Háskóla Íslands á málinu.
Nemandinn fékk 8 í einkunn fyrir ritgerðina.
Aðgangi almennings að ritgerðinni hefur nú verið lokað, en höfundur ritgerðarinnar hefur ekki viljað tjá sig vegna málsins.