Björgunarsveitir vinna nú að því að loka vegum upp í Meradali. Þetta segir Karen Ósk Lárusdóttir, staðgengill upplýsingafulltrúa Landsbjargar í samtali við Fréttablaðið.
„Enn sem komið er eru björgunarsveitir í viðbragðsstöðu,“ segir Karen.
„Þær eru að sinna einhverjum lokunum en eru annars að bíða eftir frekari upplýsingum um umfang gossins.“
Karen tekur fram að svæðið sé lokað fyrir bílaumferð og að biðlað sé til fólks að fara ekki þangað á meðan verið er að meta stöðuna.
„Það er bara að fylgjast með leiðbeiningum almannavarna og fylgjast með fréttum. Ástandið er ótryggt eins og það er núna. Það er verið að vinna upp úr öllum upplýsingum og það verður bara að sýna biðlund á meðan.“
Ítarlega er fjallað um eldgosið og viðbrögð við því á vef Fréttablaðsins.