Slysavarnarfélagið Landsbjörg hefur um langa hríð bent á brotalamir í almannavarnakerfi landsins sem í ljós komu í óveðrinu undanfarna daga. Þetta kemur fram í viðtali Lindu Blöndal við Þór Þorsteinsson, formann Slysavarnarfélagsins Landsbjargar - í þættinum 21 í kvöld,
Það eru almannavarnir í sveitarfélögunum og ákveðið kerfi þar um. Er þetta fyrirkomulag nógu gott, hvað kom í ljós núna?
„Lög um almannanvarnir eru síðan 2008 og þetta eru ágætis lög en það sem verra er og vandamálið er að það er ekki verið að fara eftir þeim. Löggjafavaldið er ekki að reyna að fara eftir þeim eins og það sjálft setur. Til dæmis að nú á að vera starfandi allan þennan tíma rannsóknarnefnd almannavarnarmála. Hún hefur aldrei verið starfandi“.
Rannsóknarnefndin hefur aldrei komið saman segir Þór og einnig að flestar almannavarnanefnir sveitarfélaga séu lítt starfandi.
Fjöldi útkalla og verkefna sjálfboðaliða Landsbjargar skipta hundruðum.
„Við höfum sinnt í kringum ellefu hundruð verkefnum. Um elleftu til tólfhundruð manns hjá Landsbjörgu hafa tekið þátt í björgun og öðru\", segir Þór.
Vinnu er ekki lokið við að til dæmis að leita uppi skepnur, aðallega hrossum en hross drápust og sum týndust í veðrinu en líka tengist vinna sem enn er unnin skaða á raforkukerfinu.
„Álagið var klárlega þegar við fáum umfangsmikla leit í Sölvadal, ofaní óveðrið“. Þar vísar Þór til leitarinnar að ungum manni sem féll í Núpá og fannst síðar látinn vegna slyss þar sem hann vann við að aðstoða við heimarafstöð við stíflu í ánni.
Fjarskiptakerfið fer út þarna og það tengist rafmagnsleysinu. Þessar brotalamir í innviðum sem deilt er um núna, komu þær ykkur á óvart?
Tetra kerfið til dæmis datt út og samband náðist ekki við Neyðarlínuna um tíma. „Þetta var náttúrlega bara mjög slæmt ástand á öllu Norðulandi, frá Hrútafirði og austur um gleymum ekki Ströndunum heldur“. Þór segir að Landsbjörg reiði sig mikið á Tetra kerfið og það sé þeim mikilvægt þá sé félagið líka með sitt eigið fjarskiptakerfi, svonefnt VHf kerfi sem er talstöðvakerfi.
En kom ykkur á óvart að rafmagns-og fjarskiptakerfi brygðist svona?
„Ég skal ekki segja en það virðist hafa komið aftanað mörgum þeim sem eiga að stjórna þessu og stýra þessu og sjá til að þetta sé í lagi og ég held að það sé alveg á hreinu að undirbúningur hefði mátt vera meiri og það er mjög slæmt þegar menn detta í þennan gír að raun bara benda hvor á annan og skammast og rífast “.