Lögregluvörður við skólann gerði ekkert

Komið hefur í ljós að vopnaður lögreglumaður sem stóð vörð utan við skólann í Florida þar sem 17 nemendur og kennarar voru myrt aðhafðist ekkert til að stöðva skothríðina. Lögreglumaðurinn, Scot Peterson, var leystur frá störfum og hefur sagt nú upp.

\"Ég er alveg eyðilagður. Mér verður illt. Hann fór aldrei inn,\" er haft eftir lögreglustjóranum í Broward sýslu, Scott Israel. Myndband sýnir hvar lögregluþjóninn kemur að skólabyggingunni 90 sekúndum eftir að árásin hefst og bíður fyrir utan í fjórar mínútur. Árásin í heild tók sex mínútur.

Skólamorðin hafa enn á ný vakið upp heitar umræður um byssulöggjöf, byssueign og varnir gegn skotárásum í Bandaríkjunum.

Í fyrrakvöld lýsti Trump Bandaríkjaforseti þeirri skoðun sinni, og jafnframt skoðun NRA samtökum vopnaeigenda, hvernig vopna mætti kennara í skólum til að sporna gegn morðárásum.

Slíkar hugmyndir falla í í afar misjafnan jarðveg. Samtök nemenda í Bandaríkjunum undirbúa nú umfangsmikil mótmæli í marsmánuði. Þann 14. mars verður fjöldaútganga úr skólum og þann 24. mótmælagangan March for Our Lives, Gangan fyrir lífi okkar.