Haft var samband við lögreglu um klukkan hálftvö í nótt vegna skothvella sem bárust úr íbúð í fjölbýli í Naustahverfi. Frá þessu greinir Ríkisútvarpið. Umfangsmikil lögregluaðgerð hófst þegar í kjölfarið. Allir lögreglumenn bæjarins og sérsveitarmenn á Akureyri voru kallaðir til, auk þess sem hóað var í liðsauka frá Dalvík, Húsavík og sérsveitinni í Reykjavík.
Hringbraut hefur heimildir um að mikill ótti hafi skapast meðal íbúa. Í frétt Rúv segir að nokkrum götum var lokað og allt gert til að tryggja vettvang, meðan beðið var eftir liðsaukanum að sunnan. Hluti almennra lögregluþjóna sem kallaðir voru til sinntu almennri löggæslu í bænum á meðan. Umsátrinu lauk um klukkan fimm í morgun. \"Skömmu eftir að liðsauki frá sérsveit lögreglunnar í Reykjavík barst var grunaður aðili handtekinn í húsinu og færður í fangageymslur lögreglunnar á Akureyri. Hann verður yfirheyrður síðar í dag. Vettvangur hefur verið tryggður og rannóknardeild Akureyrarlögreglunnar mun rannsaka hann í framhaldinu,\" segir í frétt Rúv.
Uppfært kl. 12.28:
Eftir því sem fram kemur hjá visir.is hefur maðurinn sem skaut úr haglabyssu í fjölbýlishúsinu í Naustahverfi átt við geðræn vandamál að stríða. Hann hefur ekki áður komið við sögu lögreglu. Maðurinn gaf sig sjálfur fram um fimmleytið eftir umsátur lögreglu og sérsveitar.
Maðurinn skaut skoti inn í íbúð nágrannakonu sem hann þekkir ekki, 2ja ára barn var á heimilinu. Samkvæmt heimildum Vísis eru móðirin og barnið í talsverðu áfalli. Árásin virðist ekki hafa átt sér neinn aðdraganda.