Mikil þreyta í starfi lögreglunnar

Sigríður Björk Guðjónsdóttir, lögreglustjóri í Reykjavík, sat fyrir svörum í fréttaskýringaþættinum Kvikunni á Hringbraut í gærkvöld, en þar bar á góma skipulagða og raunar ýmislegt fleira sem tengist störfum lögreglu.

Viðtalið var hispurslaust og talaði Sigríður Björk opinskátt um innri málefni lögreglunnar og sagði meðal annars að mikil þreyta og erill hefðieinkennt störf lögreglumanna undanfarið misseri og þess sæi stað í andrúmsloftinu innan lögreglunnar.

Hægt er að skoða viðtalið hér  á hringbraut.is, en þar ræddi lögreglustjórinn m.a. um átak sem beinist að því að uppræta ofbeldi innan heimila. Vísbendingar væru um að ekki hefði verið tekið á þeim málum sem skyldi hér á landi.

Þá svaraði lögreglustjóri fyrir gagnrýni sem komið hefur fram um ónógt aðhald og eftirlit, en mikil reiði ríkir í samfélaginu yfir því að lögregla hafi ekki krafist gæsluvarðhalds yfir tveimur mönnum sem grunaðir eru um nauðganir.

Kvikan verður endursýnd á hringbraut í dag, en er sem fyrr segir einnig sjáanleg á hringbraut.is.