Ólafur Helgi Kjartansson, lögreglustjóri Suðurnesja, er sagður hafa sært blygðunarkennd starfsfólk lögreglustöðvarinnar með því að hafa lagt það í vana að hafa fataskipti fyrir opnum tjöldum og prenta klúran texta á skrifstofunni. Þetta kemur fram í frétt RÚV um málið.
Í byrjun maí er Ólafur sagður hafa prentaður út grófan texta á prentara skrifstofunnar. Þar sem pappírinn kláraðist í prentaranum prentaðist hluti textans út þegar næsti starfsmaður fyllti á pappírinn. Ekki leið á löngu þar til atvikið var á allra vitorði.
Í kjölfarið barst trúnaðarmanni erindi frá starfsmanni sem þótti óviðeigandi að tölvubúnaður embættisins skyldi brúkaður til slíkra erinda. Erindi starfsmannsins hafnaði síðan í dómsmálaráðuneytinu þar sem það er til rannsóknar.
Fataskipti fyrir opnum tjöldum
Ólafur á samkvæmt RÚV einnig að hafa stundað það að hafa fataskipti á skrifstofu sinni sem særði blygðunarkennd starfsmanna.
Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, dómsmálaráðherra, hefur lagt til við Ólaf að hann hætti störfum sem lögreglustjóri en hann hefur ekki tjáð sig opinberlega um málið.