Lögreglustjóri kærður fyrir sinnuleysi

Forráðamenn Samtakanna ´78 hafa afráðið að kæra lögreglustjórann á höfuðborgarsvæðinu fyrir sinnuleysi í störfum sínum, en látið hafi verið hjá líða að rannsaka hatursorðræðu í garð hinsegin fólks á netinu.

Þetta kemur fram í Fréttablaðinu í dag þar sem segir að lögreglustjórinn hafi vísað frá kærum samtakanna um þetta efni á vordögum, en kærurnar varði meint brot tíu einstaklinga vegna opinberra ummæla í garð hinsegin fólks sem samtökin telja refsiverð. Samtökin segja málsmeðferð lögreglustjórans ekki í anda alvarleika málsins.

\"Þessa málsmeðferð lögreglu verður að telja óvandaða með hliðsjón af þeim mannréttindum minnihlutahópa á borð við hinsegin fólk sem ákvæði hegningarlaga er ætlað að vernda,\" segir Björg Valgeirsdóttir hjá DIKA lögmönnum sem fer með kærumálið fyrir hönd Samtakanna ´78.