Lögreglumenn birtu hvor öðrum ákæru á hendur konu sem þeir þekktu ekki

Dómur yfir konu sem var dæmd fyrir ölvunarakstur var ómerktur í Landsrétti í gær vegna þess að lögreglumennirnir sem áttu að birta konunni ákæruna birtu hana hvor öðrum og settu inn um bréfalúgu á lögheimili hennar. Konan var dæmd sek að henni fjarstaddri.

Í úrskurði Landsréttar segir að lögreglan í Vestmannaeyjum hafi gert margar tilraunir til þess að birta konunni stefnuna og meðal annars hafi lögreglan fylgst með húsinu sem hún var skráð með lögheimili í:

„Marg­oft hafi verið farið á lög­heimili hennar og fylgst með húsinu í eftir­liti lög­reglu til að sjá hvort að ein­hver hreyfing væri í í­búðinni eða ljós tendruð.“

Það hafi þó ekki borið árangur og þegar fjölskyldumeðlimur konunnar hafi sagt lögreglunni að líklega væri húnn stödd á Suðurnesjum hafi málið verið sent til lögreglustjórans á Suðurnesjum. Ekki tókst þó að ná til konunnar þar heldur og því var ákveðið að birta ákæruna með lögheimilisbirtingu og vitnar Landsréttur í skýrslu lögreglumannana um hvernig sú birting fór fram.

„Skýrsluna ritar lög­reglu­maður A. Í skýrslunni kemur fram að fyrir­kallið hafi verið birt fyrir lög­reglu­manni B og síðan hafi fyrir­kallið verið sett inn um bréfa­lúgu á þeirri íbúð þar sem á­kærða var með skráð lög­heimili.“

Þar sem lögreglumennirnir höfðu engin tengsl við konuna taldi Landsréttur þetta ekki vera lögmæta birtingu á ákæru og var dómur héraðsdóms því ómerktur og málinu vísað aftur til héraðsdóms.