Samtals voru 9.762 hegningarlagabrot tilkynnt til lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu árið 2018. Um er að ræða 5 prósent aukningu frá árinu 2017. Að meðaltali voru um 350 mál skráð í málaskrá lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu á hverjum sólarhring árið 2018, sem eru um 70 málum fleiri á sólarhring en árið 2017. Þetta er meðal þess sem kemur fram í bráðabirgðaniðurstöðum afbrotatölfræði lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu fyrir árið 2018. Kjarninn.is greinir frá.
Tilkynntum ofbeldisbrotum og kynferðisbrotum hefur fjölgað á síðustu árum og mikinn árangur þeim tengdum megi m.a. rekja til breytinga á skráningu heimilisofbeldismála. Þetta segir Sigríður Björk Guðjónsdóttir lögreglustjóri í samtali við Fréttablaðið í dag og bætir við að aukning á tilkynningum á kynferðisbrotum tengist aukinni tiltrú fólks á kerfinu og aukinnar umræðu, t.a.m. í gegnum MeToo hreyfinguna. Fleiri heimilisofbeldismál og kynferðisbrotamál komist nú inn á borð lögreglunnar en áður.
„Það er komið meira fé sem skilar sér í hraðari málsmeðferðartíma. En fyrst og fremst, það að setja kynbundið ofbeldi á oddinn sem áhersluatriði og að hugsa um þetta sem þjónustustofnun en ekki valdastofnun, það er að skila sér líka hvað þetta varðar,“ segir Sigríður Björk við Fréttablaðið.