Karl Ágúst Úlfsson leikari lætur grínið lönd og leið í snarpri færslu á facebook í morgun sem vakið hefur mikla athygli.
Þar segir leikarinn góðkunni og höfundur Spaugstofunnar, að oftast sé hann stoltur af því að vera Íslendingur en ekki þennan morguninn. Mikils metinn bankamaður hafi nýverið sagt að hér væri blússandi góðæri. Víkur Karl Ágúst þá sögu að tveimur mjög umdeildum málum líðandi stundar.
„Í þessu blússandi góðæri ætlum við áfram að neita öldruðum, sjúkum, fötluðum og þeim sem minna mega sín um leiðréttingu á kjörum sínum -- í þessu blússandi góðæri sigum við lögreglu á langveik börn um miðja nótt svo hægt sé að senda þau úr landi -- og ætlum við svo að halda jól? -- ætlum við að láta eins og við trúum á mannkærleik og ást á náunganum? -- í alvöru?“
Vísar þar leikstjórinn annars vegar til aðgerðar í nótt þar sem fjöldi lögreglumanna hóf brottflutning á albanskri fjölskyldu burt úr landi en einn fjölskyldumeðlima er langveikur. Hér má lesa um það.
Hitt málið sem hann vísar til er tregða ríkisstjórnar að hækka bætur til aldraðra og öryrkja afturvirkt eins og Hringbraut hefur fjallað um.