Ef almenningur hefði ekki komið lögreglunni til varnar á sínum tíma í búsáhaldabyltingunni hefði mjög illa farið. Ég má eiginlega ekki segja frá því hvað hefði gerst, en ég get sagt þér að lögreglan þá var hreinlega alveg búin á því.
Þetta rifjaði Geir Jón Þórisson lögreglumaður upp í Mannamáli í gærkvöld þar sem hann lýsti upplifun lögreglunnar af búsáhaldabyltingunni í upphafi ársins 2009. Hann sagði Stefán Eiríksson lögreglustjóra hafa lagt þá línu strax og uppþotin hófust að tekið yrði á mótmælendum með eins mildum hætti og hugsast gæti - og það hefði verið gert, á stundum svo að það kostaði lögregluna miklu meiri meiðsli en nokkurn tíma mótmælendur. Dagskipunin var alltaf, sagði Geir Jón í þættinum, að koma fram eins ljúfmannlega við fólkið framan við þinghúsið og Stjórnarráðið og frekast var unnt - og sennilega gengum við stundum þar lengra í mildinni en aðstæður buðu upp á, rifjaði hann upp. En þetta reyndi mjög á menn, hélt hann áfram; lögreglan var hreinlega alveg búin á því þegar umsnúningurinn var 22. janúar 2009 þegar einn úr hópi mótmælenda tók sig til og styllti sér upp framan við einn lögregluþjóninn sem var að verja Stjórnarráðið og hrópaði upphátt; hvað hefur lögreglan gert okkur?
Geir Jón lýsti því hvernig bragur mótmælanna breyttist við þetta á svipstundu; mikill fjöldi fólks hafi allt í einu áttað sig á hvað raunverulega var að gerast og sneri bökum saman framan við lögregluna og hafði á orði að þótt það væri að mótmæla þá væri það samt á móti ofbeldi. Þar með lynnti loksins grjótkastinu og lögreglan gat andað léttar - og kannski eins gott því varnir hennar voru við það að bresta eftir linnulausar árásir. "Fólk gerir sér kannski ekki grein fyrir þessu en þetta var heimsatburður. Fólkið setti á sig rauðgula borða og gekk í lið með lögreglunni," sagði Geir Jón í þættinum.
Hann bendir á að á sama tíma hafði fækkað stórlega í liði lögreglunnar, en líklega vanti um 100 lögreglumenn í lið hennar á höfuðborgarsvæðinu ef hún á að vera á pari við mannafla hennar fyrir hrun. Þá gleymist í umræðunni að lögreglan sjálf hafi þurft að borga allan kostnaðinn við mótmælin á sínum tíma úr eigin sjóðum og þess sjái enn stað í rekstri hennar og muni gera lengi áfram.
Allt viðtalið við Geir Jón má sjá á hringbraut.is undir sjónvarpsflipanum.