Lögreglan rannsakar mögulegan hatursglæp - veist að þremur múslímskum konum.

Um klukkan 19:00 í gær fékk lögreglan tilkynningu um að einhver hafi veist að þremur múslímskum konum í Breiðholti. Lögreglan var kölluð á staðin og er málið nú rannsakað sem mögulegur hatursglæpur. Lögreglan hefur ekki gefið neinar frekari upplýsingar um málið eða hvort einhver hafi verið handtekinn eða yfirheyrður vegna málsins.