Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Stefáni Guðbrandssyni, 27 ára. Talið er að hann sé klæddur í svartan jakka og dökkar buxur og ljósgráa hettupeysu. Stefán, sem er grannvaxinn er 80 kg og 190 sm á hæð, er með blágrá augu og skollitað hár og skeggjaður.
Síðast er vitað um ferðir hans við Gömlu Hringbraut um klukkan 11:00 í gærdag, þriðjudagi 14. október. Þeir sem geta gefið upplýsingar um ferðir Stefáns eru beðnir um að hafa samband við lögregluna í síma 444 1000.
Vinsamlegast deilið!