Lögreglan óskar eftir aðstoð: hefur þú upplýsingar um ferðir rima grunskyté feliksasdóttur?

„Björgunarsveitir af Suðurland og úr Reykjavík hafa árangurslaust leitað af Rima Grunskyté Feliksasdóttur sem ekkert hefur spurst til síðan um kl. 19 s.l. föstudag.

Leitað var með fram strandlengjunni frá Þorlákshöfn að Skaftárósum í dag. Einnig var leitað við Dyrhólaey, fótgangandi og með drónum. Þyrla Landhelgisgæslunnar aðstoðaði einnig við leitina.“

Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á Suðurlandi. Þar segir enn fremur:

„Ákveðið hefur verið að bíða með áframhald leitar þar til á fimmtudag.

Lögreglan óskar eftir því að hafi einhver upplýsingar um ferðir Rima frá því kl 19 s.l. föstudag setji sig í samband við lögregluna, þá annað hvort á netfangið [email protected] eða í einkaskilaboðum á Facebook.“

Vinsamlegast deilið.