Lögreglan á Norðausturlandi-Akureyri lýsir eftir Adam Kulesza pólskum ríkisborgara sem ekkert hefur spurst til síðan 13. ágúst síðastliðinn. Í skeyti lögreglu segir:
Adam er 28 ára gamall, um 1.93 sentímetrar á hæð og í kringum 85 kíló. Hann er snoðklipptur/stuttklipptur og var síðast klæddur í grá Nike föt, peysu og buxur og appelsínugula/svarta og gráa úlpu.
Síðast sást til hans á Akureyri.
Ef einhver hefur orðið Adam var, þá vinsamlega hafið samband við lögregluna á Akureyri í síma 444-2800 eða 112 og óskið eftir að fá samband við lögreglu. Lögreglan Akureyri.