Lögreglan óskar eftir aðstoð: hefur þú séð björgu?

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Björgu Ólavíu Ólafsdóttur f. 1971.  Björg Ólavía er klædd í svarta úlpu, í bláum íþróttaskóm, með brúnt axlasítt hár, þrekvaxin og 171 cm á hæð.  Björg Ólavía er með gráan bakpoka.  Síðast er vitað um ferðir hennar um miðjan dag í gær við Holtagarða.

 Þeir sem geta gefið upplýsingar um ferðir Bjargar Ólavíu eru beðnir um að hafa samband við lögreglu í gegnum s. 444 1000 eða í einkaskilaboðum á samfélagsmiðlum.

Uppfært: Björg er fundin