Lögreglan lýsir eftir renars mezgalis - sást síðast til hans í gær

Lögreglan á Suðurlandi lýsir eftir hinum 19 ára gamla Renars Mezgalis. Síðast er vitað um ferðir hans seinni partinn í gær. Renars er 190 sentimetrar á hæð og er honum lýst sem meðalmanni að vexti. Hann hefur til umráða 2002 árgerð af Nissan Patrol með skráningarnúmerið YS-565.  Þeir sem búa yfir upplýsingum um ferðir Renars eða vita hvar hann er niðurkominn eru beðnir um að hafa tafarlaust samband við lögreglu í síma 112.