Lögreglan lýsir eftir frystikistu! getur þú hjálpað?

„Um klukkan 16 í dag var vegfarandi um Skeiðaveg fyrir því óláni að ný frystikista féll af palli bifreiðar hans og hafnaði fyrir utan veg. Þar sem eigandinn var einn á ferð sótti hann mann sér til aðstoðar en þegar hann kom aftur á vettvang greip eigandi í tómt því ar búið að fjarlægja frystikistuna.“

Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á Suðurlandi sem óskar eftir, í afar óvenjulegri bón, aðstoð almennings til að hafa upp á frystikistunni. Í tilkynningunni segir:

„Um var að ræða 311 L frystikistu og málin á henni eru 92 x 118 x 70 cm. Þeir geta gefið upplýsingar um hvar frystikistan er niður komin eru beðnir um að koma þeim upplýsingum til lögreglu á Selfossi. Vinsamlegast deilið!“