Lögreglan óskar eftir aðstoð: leitar að ökumanni sem ók á 10 ára dreng í kópavogi

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu leitar ökumanns fólksbifreiðar sem ók á 10 ára dreng á Fífuhvammsvegi í Kópavogi föstudaginn 16. ágúst sl. kl. 13.48, en málið var ekki tilkynnt til lögreglu fyrr en síðar. 

Við áreksturinn féll drengurinn í götuna, en stóð upp aftur og fór strax af vettvangi og því náði ökumaðurinn ekki að hafa tal af honum. Foreldrar drengsins fóru með hann á slysadeild eftir óhappið og þá komu áverkar í ljós. 

Ökumaður fólksbifreiðarinnar var á vettvangi í nokkrar mínútur og ræddi m.a. við aðra vegfarendur, en hann og aðrir sem kunna að lenda í slíkum aðstæðum eru minntir á mikilvægi þess að tilkynna um það til lögreglu. 

Meðfylgjandi er mynd af gatnamótunum þar sem slysið varð, en fólksbifreiðinni var ekið austur Fífuhvammsveg á móts við Smáralind.

Vinsamlegast deilið!

\"\"

 

Umræddur ökumaður er beðinn um að hafa samband við lögreglu í síma 444 1000, en hafi aðrir upplýsingar um ökumanninn, eða slysið, má koma þeim á framfæri í tölvupósti á netfangið [email protected] eða í einkaskilaboðum á fésbókarsíðu Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.